Færsluflokkur: Dægurmál

Tuð er þetta, smávegis uppþot hafa aldrei sakað neinn!

Við sveitafólkið látum ekki plata okkur svona. Auðvitað á að mótmæla og tuska aðeins aðra til. Gott er grýta eggjum og jafnvel öðrum lauslegum hlutum. Það hefur aldrei skaðað neinn.

Það er líka mín skoðun að þegar allt um þrýtur er besta leiðin til að fá aðra til að taka mark á manni og hlýða á er að ganga af göflunum aðeins og stunda smávegis skemmdarverk og ofbeldi. Við tókum oft til hendinni á þann hátt í sveitinni den, og alltaf fengum við það sem við vildum.

Ég held að best sé að fleiri mæti á næstu mótmæli og að fleiri grípi til ofbeldis. Gott væri að velta við kyrrstæðum bílum og kveikja í, það klikkar aldrei.

Annars tel ég að hinn stórkostlegi stjórnmálaskörungur Jón Baldvin mætti alveg hræra meira upp í fólki en hann gerir, hvetja til meiri átaka og upphlaupa. Mér finnst bara ekki nóg að gert.

Auðvitað kemur svo fólk og vælir og kvartar, löggan og svona, en það eru bara aumingjar sem eru á móti okkur sem er nóg boðið. Við þurfum að finna sökudólga og það strax, og gildir einu hvort þeir séu sekir eða ekki. Við þurfum blóð og blóð er það sem við krefjumst! Lifi byltingin!

Uppþot og mótmæli, eins og ég sagði, hafa aldrei skaðað neinn og lýkur alltaf á því að við sem mótmælum fáum okkar framgengt átakalaust og friðsællega. Ef það þarf að ganga í skrokk á valdhöfum og brenna nokkrar byggingar, þá veri það svo, stundum þurfum við ofbeldi og skemmdarverk til að ná fram friðsælum kröfum okkar.

Við sem mótmæltum í dag krefjumst þess, öll sem eitt, að Framsókn taki við stjórn landsmála hið snarasta. Hver dagur sem líður án þess að við Framsóknarmenn stöndum vaktina í stýrishúsi þjóðarskútunnar er dagur sem við færumst nær glötun. Við höfum bjargað þjóðinni oft áður og munar ekkert um að gera það aftur. En til þess að svo megi vera þurfa þessi mörg þúsund sem voru í bænum í dag (löggan segir 2 þúsund, ég taldi hið minnsta 8 þúsund) og sem kröfðust þess að Framsókn kæmist til valda, að láta heyra hærra og hærra í sér. Ef við þurfum að grýta byggingar, ganga í skrokk á þeim sem ekki eru okkur sammála, og eyðileggja eigur hér og þar um borgina.... þá verður að hafa það. Öðruvísi náum við ekki fram friðsælum kröfum okkar um sátt og samstöðu og kærleika. Kjarna hugmyndafræði okkar Framsóknarmanna.

Lifi byltingin - finnum sökudólgana!

mbl.is Geir Jón: Lítið má út af bregða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsagt að fá pólskt lán

Ég held að þessir peningar frá Póllandi muni koma í góðar þarfir, ekki síst við uppbyggingu á landsbyggðinni og í landbúnaði.  Það sem ríður á núna er að þiggja þessa peninga og setja þá strax "inn í kerfið" eins og sagt er í borginni, til að efla búskap og sjálfsaflahæfni landsmanna.

Því við Íslendingar erum stolt þjóð og engum háð, við þiggjum ekki neitt frá neinum og þurfum nákvæmlega enga aðstoð, og þetta lán frá Pólverjum undirstrikar það og styrkir þá stöðu okkar.  Ég hef rætt um það áður, og fengið gríðarlega góð og jákvæð viðbrögð, að nú þurfi að stofna stórar ríkisbújarðir og ríkisútgerðir sem haldi skipulega utan um landbúnað og sjávarútveg, og fjölskyldum þessa lands verði boðið að setjast að í sveitum eða sjávarþorpum og vinna störf á þessum jörðum eða skipum þessara útgerða.  Gegn vinnuframlagi fær fólk svo að halda hluta uppskeru eða afla til að sjá sér og sínum farborða.  Til þess að þetta megi verða þarf fjármögnun erlendis frá, og þá kemur pólska lánið til skjalana.  Og slíkt fyrirkomulega sýnir umheiminum að við erum sjálfum okkur næg með allt, ef við bara fáum fjármögnun erlendis frá til að koma hlutum í gang og reka.  

Við getum sparað stórar fjárhæðir í innflutningi á hinu og þessu, t.d. á eldsneyti.  Við eigum þrjú olíufélög eða þar um bil, þau eru íslensk og á Íslandi eru ótal bensínstöðvar sem allar hafa bensín á dælum.  Það bensín hlýtur að nægja innanlandsþörf og enginn skortur er þar.  Þar af leiðandi getum við afþakkað allan innflutning á eldsneyti, við erum sjálfum okkur næg.  Í verslunum er nóg af matvöru, Cheerios, pastasósur, pasta, hrísgrjón, og allt hvað eina.... þessar verslanir eru íslenskar og á Íslandi, og engin þörf á viðskiptum við útlönd.... við kaupum bara þær vörur sem til eru í íslenskum verslunum.  Með þessu, og fleiru, getum við í einum vetvangi hætt innflutningi og komist vel af.

Við þurfum enga aðstoð eða ölmusu erlendis frá, við eru sjálfstæð og getum séð um okkur sjálf.  Það eina sem þarf til er að við tökum skrefið til fulls og fáum erlend lán inn í landið og aðkomu IMF.  Þannig náum við fullu sjálfstæði og verðum óháð öllum öðrum.

Það er aðeins einn flokkur sem getur komið þessum ágætu málum til leiðar.  Þeim flokki er best treystandi til að koma slíkri aðgerðaáætlun í gang og tryggja velmegun á Íslandi og sjálfbærni þjóðarinnar, ásamt því að tryggja sjálfstæði hennar til langframa. 


mbl.is Kannast ekki við pólskt lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissulega á að kjósa strax og þessa hluti vil ég sjá:

Það er klárt að umboð stjórnarinnar er runnið út, og þjóðin kallar á Framsóknarflokkinn að leiða okkur út úr vandanum.  Ég legg til að kosið verði sem fyrst og að Framsókn verði valin til að leiða næstu ríkisstjórn.  Nokkrir hlutir sem ætti að setja á oddinn til að hefja okkur til vegs og virðingar:

 

1) Stórkostleg efling landbúnaðar og sjávarútvegs.  Lögð verði áhersla á stór bú og stórar útgerðir þar sem almenningi gefst kostur á að yrkja jörðina og sækja sjó og fá í sinn hlut hluta uppskeru og afla sem laun fyrir sína vinnu.  Þannig er matvælaöryggi landsmanna tryggt og enginn þarf að svelta.

2) Ríkið kaupi allt húsnæði á landinu og leigi aftur til fólks á hóflegum verðum.  Steinsteypuruglið þarf að stöðva ekki síðar en strax.

3) Ríkið setji á fót sérstaka Ákvarðanatökustofnun þar sem teknar verða ákvarðanir fyrir fólk (að sjálfsögðu í samráði við það) um stærstu ákvarðanir lífsins, t.d. eins og varðandi húsnæði, skólagöngu, barneignir, bílakaup, utanlandsferðir og fleira.  Stofnunin mun fara yfir stöðu fólks í hverju tilfelli fyrir sig og útbúa leyfi til handa landsmönnum til að ráðast í fyrrgreindar aðgerðir eða fjárfestingar, og svo muni ríkisbankarnir sjá um fjármögnun þeirra hluta.

4) Lögð verði áhersla á þjóðfélagslega uppbyggilega umræðu og aðgerðir, t.d. verði ekki heimilt að ráðstafa tekjum og safnaði í fánýta hluti og lúxus; bankarnir t.d. láni ekki fólki fjármagn til kaupa á lúxusbílum út á það eitt að það muni borga peningana til baka, heldur láni frekar til atvinnusköpunar á landsbyggðinni, s.s. refarækt og fiskeldi.  Hluti sem skapa verðmæti og vinnu, sér í lagi í hinum dreifðu byggðum.

5) Ríkið fái fjármagn til að kaupa öll fyrirtæki á landinu sem hafa fleiri en 30 starfsmenn, og tryggja þannig atvinnuöryggi heimilanna.  Ef ríkið á þessi fyrirtæki er auðsótt mál að tryggja að starfsmönnum þeirra verði ekki sagt upp og þannig heldur fólk sinni vinnu og atvinnuleysi verður mun minna en ella.  Þess utan gæti ríkið aðlagað rekstur fyrirtækja að þjóðfélagslegri skyldu s.s. að byggja verslunarmiðstöðvar í smærri bæjarfélögum þar sem boðið væri upp á sömu valmöguleika og vöruúrval.   Ennfremur gæfist þarna kostur á að lækka laun starfsmanna margra þessara fyrirtækja sem hafa ofurlaun, mér finnst t.d. að 250þ séu fín laun fyrir fólk og engin ástæða til að borga fólki meira.

6) Ríkið stórhækki barnabætur, vaxtabætur, ellibætur, öryrkjabætur, og annað slíkt.  Við þurfum að hækka þessa bætur upp í 250þ á mánuði, sömu fjárhæð og hæstu lögleiddu laun í landinu, til að tryggja jöfnuð.  Þannig sitja allir við sama borð.

Ég efast ekki um að þessir hlutir muni hljóta hljómgrunn meðal landsmanna í komandi kosningum, enda eru þeir í anda stefnu míns flokks.  Allir jafnir, árangur áfram og ekkert stopp! 


mbl.is Vaxandi krafa um kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyr Geir! Kórrétt og skynsamt

Auðvitað þurfum við ekki þetta lán, ef við höfum eitthvað lært undanfarnar vikur þá hlýtur það að vera það að peningar færa enga hamingju. Við ættum að gefa þessum IMF pésum langt nef og afþakka alla aðstoð erlendis frá ef hún kostar þetta, við búum í gjöfulu landi og hér er vinnufært fólk sem getur hæglega flust í sveitir landsins og byrjað að yrkja jörðina og sækja sjó.

Við gætum t.d. stofnað stórar bújarðir þar sem fólk gæti stundað búskap og fengið hluta afrakstrar landsins í sinn hlut fyrir sig og sína, afgangurinn færi til ríkisins. Sama á við um sjósókn, við gætum stofnað fyrirtæki í sjávarplássum landsins og gert út smærri báta, hluti aflans færi kæmi svo í hlut sjómannanna sem hefðu þannig mat fyrir fjölskyldur sínar.

Þetta er það sem mun sjá okkur farborða í framtíðinni og við erum ekkert of góð til að stunda alvöru vinnu svona til tilbreytingar.


mbl.is Við hættum frekar við lánið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölga þarf aðstoðarmönnum þingmanna

Einhverjar raddir hafa heyrst þess efnis að þingmenn eigi að fækka aðstoðarmönnum sínum, eða losa sig alveg við þá. Það væri stóvarhugavert. Ef nokkru sinni var þörf fyrir aðstoðarmenn þingmanna er það þegar svona mikið mæðir á þeim og þá þurfa þeir hið minnsta 1 aðstoðarmann hver. Sumir fleiri. Hækka þarf laun aðstoðarmannanna líka til að fá inn bestu einstaklingana svo við fáum bestu þingmennina í slaginn.

Aðstoðarmenn þingmanna eru eitt það besta sem gerst gat, ef frá er talin útvíkkun utanríkisþjónustunnar, sem má heldur ekki dragast saman. Nú fyrst er þörf á fjölgun sendiherra og sendiráða til að bera hróður landsins um heim allan, og ættum við að gefa hraustlega í frekar en hitt. Fjölga í sendiráðum sem til eru nú þegar og bæta við sendiráðum í ríkjum um víða veröld. Það hefur sannast í yfirstandandi orrahríð hversu gríðarlega mikilvæg utanríkisþjónustan hefur reynst við að leiðrétta rangfærslur erlendis. Betur má en duga skal, segi ég. Styrkjum þingmenn og utanríkisþjónustu, öðruvísi verður vandi hinn mesti að komast út úr vandræðunum.


mbl.is Frumvarp um ábyrgðarmenn lagt fyrir Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei, við þurfum stjórnmálamenn í bankaráðin!

Það yrði hræðilegt ef bankaráðin yrðu skipuð einhverjum "fag"aðilum. Ekki hefur þeim farnast vel hingað til. Sveiattan. Ég segi, við þurfum að skipa stjórnmálamenn í bankaráðin. Auðvitað þurfa allir flokkar að koma þar að málum, en tryggja þarf að almannahagsmunir séu hafðir í heiðri í bönkunum, ekki einhver bissnisshugsun. Lán skal veita þeim sem geta sýnt fram á að þeir ætli ekki að nota þau í einhverja vitleysu, og þjóðin sem heild verður að uppskera afrakstur lántökunnar. Annað er ótækt og býður upp á að einhverjir aðilar sanki að sér ríkidæmi á kostnað okkar hinna.

Við Framsóknarmenn höfum mikilvæga hluti fram að færa í nýju bankaráðin. T.d. hefur Finnur Ingólfsson víðtæka og góða reynslu af rekstri banka og hann væri tilvalinn sem bankaráðsmaður, jafnvel formaður bankaráðs,einhvers bankanna. Ef við gætum þess ekki að bankarnir séu í takt við pólitíkina er hætt við að bankarnir muni ekki sinna stjórnmálalegum markmiðum hverju sinni. Til að hér verði hagsæld þurfa bankarnir að stýra neyslu fólks og hegðun í samræmi við taktfasta göngu stjórnvalda hverju sinni, að sjálfsögðu undir styrkri ríkisstjórn Framsóknar eftir næstu kosningar.

Hver getur t.d. mælt á móti því að tilvalið sé að bankarnir láni í mun meiri mæli en áður til bænda og sjófarenda? Slíkt er mikilvægt framtíð landsins, að auðvelda aðgang bænda að fjármagni, en hefur ekki mætt skilningi í bankakerfinu. Nú er lag! Með Framsókn við völd í bönkunum myndum við sjá aukin framlög í gegnum bankakerfið til kúabænda, sauðfjárbænda, og blómabænda. Að ekki sé minnst á öll þau sóknarfæri sem felast í t.d. refarækt og minkarækt, þar sem við getum grætt milljarða á komandi árum. Nú eða gríðarlega sóknarmöguleika í laxeldi (nóga höfum við firðina og strendurnar til að gera góða hluti í slíkum greinum). Án aðkomu stjórnmálamanna í rekstri bankanna getum við gleymt slíkum bjargráðum, og fólk myndi hirða peningana okkar úr bönkunum til að kaupa sér fleiri bíla, sjónvörp, sumarhús, og annan óþarfa.

Ég hafna því að bankarnir verði reknir á öðrum forsendum en pólitískum, því pólitíkin er best til þess fallin að sjá um okkur landsmenn til framtíðar. Við eigum ekki að þurfa að horfa fram á það að taka ákvarðanir á hverjum degi um okkar líf sem geta haft áhrif til ills ef illa fer, það er ósanngjarnt og skapar eymd og dregur þrótt úr okkar þjóð. Ef við höfum miðlæga stofnun sem tekur allar meiriháttar ákvarðanir fyrir okkur verða þær ákvarðanir betur upplýstar og mun líklegri til að koma okkur til góða. Og þar koma nýju ríkisbankarnir inn í. Með öflugri tengingu á milli slíkrar ákvarðanatökustofnunar og ríkisbankanna má koma í veg fyrir að almenningur skuldsetji sig eða kaupi einhvern tóman óþarfa og sólundi í bruðl með lánsfé. Stjórnmálaflokkar munu leggja línurnar fyrir landsmenn alla og aðstoða okkur í gegnum bankakerfið til að forðast freistingar og sýna ráðdeild.

Og ég hef enga trú á öðru en að við sem þjóð munum átta okkur á mikilvægi Framsóknarflokksins í þeirri viðleitni, að hugmyndafræði flokksins muni fara vel saman við þá stefnu sem við sem einstaklingar og þjóð eigum að taka.


mbl.is Ný bankaráð fyrir vikulok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hneyksli, skandall, fáheyrð svívirða!

Nú veit ég ekki hvað þessir stýrivextir þýða eða hvaða merkingu þeir hafa svona í praxís, en mér finnst þessi 18% vera rosalega há tala.  Það hreinlega getur ekki verið gott að hafa vexti svona háa.

Ég hitti mann í gær sem sagði að þetta væri gott fyrir sig, því hann ætti sparifé inni á bók og þar væru svo háir innlánsvextir að hann væri að hugsa um að leggja enn meira til hliðar en áður, til að njóta þessara háu vaxta.

Þvílíkt rugl, segi ég!  Hann veit ekkert í sinn haus (og ég sagði honum það).  Svona stýrivextir drepa alla og hann græðir ekkert á háum innlánsvöxtum.  Eru ekki allir að tala um að svona háir vextir bitni á öllum?  Af hverju ætti hann að vera undanskilinn eitthvað?  Ég gruna hann reyndar um að vera einhvern hrapp sem brýtur lög og snuðar okkur hin, því hann hefur það ágætt og virðist ekki vera í mjög vondum málum.  Hann getur ekki, og má ekki, sleppa svona vel, segi ég.

Ég skil ekki hvað öll þessi hugtök merkja, eða hvað einhverjir hagfræðingar segja.  Ég hef hins vegar mjög sterkar skoðanir á þessu öllu og við Davíð burt, ég vil kosningar, ég vil niðurfellingu verðtryggingar, burt með ríkisstjórnina, og stöðugleika.  Ég held svei mér að sá tími sé liðinn að fólk eigi að reyna að skilja hlutina og setja sig inn í þá, slíkt tekur tíma og fyrirhöfn, og við höfum ekki slíkt til umráða.  Nú þurfum við að finna sökudólgana og refsa þeim.  Við getum gert upp síðar hvort við höfum refsað réttu aðilunum og hvað þeir þá gerðu rangt.  Við vitum svo sem alveg hverjir eru skúrkarnir, það eru þeir sem fréttamenn hafa bent okkur á dag eftir dag, og af hverju ættu þessir fagaðilar fjórða valdsins eitthvað að skrökva að okkur?  Ef Egill Helgason eða Agnes Bragadóttir segja að einhver sé sekur, þá er það nógu gott fyrir mig.  Þau vita pottþétt sínu viti.

Þetta hefði aldrei gerst ef Framsókn hefði verið við völd.   


mbl.is Stýrivextir áfram 18%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við þurfum enga aðstoð, gott fólk

Við þurfum enga aðstoð, við getum séð um okkur sjálf.  Landið er stórt og gjöfult og nú er ráð að snúa aftur til grunnstoðanna og hefja landbúnað af myndugleik sem og sjósókn.  Við getum verið sjálf okkur næg um nauðþurftir og þurfum ekki á útlenskum peningum að halda.

Við í Framsókn höfum alla tíð verið dyggir talsmenn þess að hér á landi eigum við að vera sjálfum okkur næg, og nú er lag.  Til hvurs þurfum við alla þessa peninga frá IMF?  Hvað eigum við að gera við þá?  Við bara tökum lán upp á óheyrilegar upphæðir og borgum af því vexti sem drepa okkur?  Og á meðan situr bara peningurinn í einhverri hvelfingu í Seðlabankanum.  Til hvurs?

Nei, ég krefst þess að nú verði þing rofið og Guðna Ágústssyni fært stjórnarmyndunarumboð.  Með sterkri löggjöf er hægt að leggja niður samskipti við útlönd, nema Noreg, og setja á fót stór og góð samyrjubú um land allt þar sem almenningur getur fengið vinnu við landbúnað, nú eða samskonar fyrirkomulag í sjávarplássum landsins, og gegn vinnuframlagi fengið greitt í fatnaði og mat og húsaskjóli.  Á þann hátt yrðum við sjálfum okkur næg, og þeir sem ekki sætta sig við það geta bara búið annars staðar.  Við Framsóknarmenn eru stoltir af landi okkar og fólki!   


mbl.is Uggandi um afgreiðslu umsóknar hjá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru landsfeður úr Framsókn? Þeir þurfa að bjarga okkur!

Nú þarfnast þjóðin Guðna Ágústssonar. Framsóknarflokkurinn er sverð og skjöldur íslenskrar alþýðu og þarf nauðsynlega að komast til valda til að hreinsa til þetta klúður. Ef það er eitthvað sem við Framsóknarmenn gerum vel, þá er það að koma landinu aftur á réttan kjöl eftir klúður hinna flokkanna, við höfum gert það í gegnum söguna. En njótum ekki sannmælis fyrir, því miður.

Auðvitað þarf þjóðin kosningar strax, mér finnst ótækt að hér sé kosið bara á fjögurra ára fresti, þegar klárlega þarf að kjósa mun oftar því eins og við sjáum eru margir sem krefjast kosninga. Er það ekki lýðræði að kjósa þegar fólkið krefst þess? Við í Framsóknarflokknum skorumst sko ekki undan, nú verður gefið í og við munum koma í veg fyrir svona óráðsíu í framtíðinni... hinu nýja Íslandi.

Við viljum byggja á landbúnaði og sjávarútvegi og hóflegri nýtingu vatnsafls til framleiðslu rafmangs til helstu nauðsynja. Í landinu eru flestir færir um að yrkja jörðina og sækja sjó, við gerðum það í hundruð ára og getum það enn. Það er auðvitað deginum ljósara að við þurfum ekki allt þetta pjátur og prjál sem drekkir okkur í nýmóðins þunglyndi. Það er hlutverk nýrrar ríkisstjórnar að létta þessum byrðum að landinu, endurreisa sannleikann og tryggja að fólk láti sér nægja hófsemi og nægjusemi.

Enginn þarf tvo bíla, mörg sjónvörp, eða tíðar utanferðir. Ég á t.d. 19 ára gamlan Volvo sem er í prýðilegu ástandi, á eitt gamalt sjónvarp og bara farið 1x til útlanda. Til útlanda er ekkert að sækja og við ættum að láta okkur nægja að njóta eigin lands.

Nú þurfum við að finna ALLA sem ábyrgð bera á núverandi ástandi, eða hið minnsta alla sem við teljum bera ábyrgð, refsa þeim grimmilega. Síðan þurfum við að byggja upp nýtt samfélag þar sem við stundum landbúnað til að hafa í okkur og á, sjávarútveg og viðlíka. Þannig getum við haft í okkur og á. Meira þurfum við ekki. Við þurfum bara Framsókn, og þá blessast allt hitt. Eins og það hefur alla tíð gert.


mbl.is Ekki hægt að taka aðra ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hægt að kenna Framsókn um!

Það fer mikið í taugarnar á mér að kenna Framsókn um það sem aflaga hefur farið.  Því fer fjarri.  Framsóknarflokkurinn hefur alla tíð staðið vörð um almenning í landinu og gert svo með ráðum og dáð, en hefur þó orðið fyrir barðinu á illviljuðum samstarfsflokkum í gegnum tíðina þegar slæmar ákvarðanir hafa verið teknar.  En við hefðum verið utan stjórnar meira en við því miður höfum verið, væri landið svo sannarlega á köldum klaka.

Mér finnst einstakt hvað Guðni Ágústsson hefur borið af í umræðunni undanfarið, hann er í senn landsföðurslegur og yfirvegaður, talar af rökfestu og skynsemi um alla hluti.  Svei mér þá ef hann er ekki efni í að vera með næsta ávarp á gamlárskvöld!  Það stenst Guðna mínum enginn snúning.

Það verður aldrei sagt um Framsókn að við höfum svikið kjósendur eða staðið okkur illa.  Það sem aflaga hefur farið undanfarið er fyrst og fremst Samfylkingunni að kenna, Seðlabankastjóra, og Sjálfstæðisflokki (S-unum þremur).   Framsókn hefur þó bjargað því sem bjargað varð, hvort heldur sem er í borg eða landsmálum.

Hver man ekki eftir því þegar ríkisstjórnin ætlaði að flytja inn stórhættulegt og eitrað útlenskt kjöt og útrýma bústólpum landsins í einni svipan?  Láta þjóðina liggja í salmónellu og viðbjóði bara til að menn gætu sparað einhverja aura við kaup á kjöti?  Nei, þá er nú betra að borða íslenskt og styrkja sveitunga sína, þó það kosti aðeins meira og sé ekki eins mikil "gæði".  Gæði eru ofmetin og sumt á fólk einfaldlega ekki að fá að velja um.

Ég treysti Guðna til þess að leiða næstu ríkisstjórn af myndugleik, og vona að hans fyrsta verk sem landsfaðir verði að setja lög og reglur sem meini almenningi að skuldsetja sig í botn.  Það sem við þurfum er virkilega sterk og öflug eftirlitsstofnun sem gætir þess að fólk taki ekki lán fyrir einhverjum bévítans óþurftum (sama fólkið og vildi kaupa ó-íslenskt kjöt, væntanlega) heldur láti sér nægja hina einföldu hluti í lífinu.  Ef einhver getur stöðvað bílífið og óhófið, þá er það Guðni í gegnum sterka ríkisstjórn og öflugt  löggjafarþing.

Virðingarfyllzt 


mbl.is Þingmenn eins og afgreiðslufólk á kassa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband