Ekki hægt að kenna Framsókn um!

Það fer mikið í taugarnar á mér að kenna Framsókn um það sem aflaga hefur farið.  Því fer fjarri.  Framsóknarflokkurinn hefur alla tíð staðið vörð um almenning í landinu og gert svo með ráðum og dáð, en hefur þó orðið fyrir barðinu á illviljuðum samstarfsflokkum í gegnum tíðina þegar slæmar ákvarðanir hafa verið teknar.  En við hefðum verið utan stjórnar meira en við því miður höfum verið, væri landið svo sannarlega á köldum klaka.

Mér finnst einstakt hvað Guðni Ágústsson hefur borið af í umræðunni undanfarið, hann er í senn landsföðurslegur og yfirvegaður, talar af rökfestu og skynsemi um alla hluti.  Svei mér þá ef hann er ekki efni í að vera með næsta ávarp á gamlárskvöld!  Það stenst Guðna mínum enginn snúning.

Það verður aldrei sagt um Framsókn að við höfum svikið kjósendur eða staðið okkur illa.  Það sem aflaga hefur farið undanfarið er fyrst og fremst Samfylkingunni að kenna, Seðlabankastjóra, og Sjálfstæðisflokki (S-unum þremur).   Framsókn hefur þó bjargað því sem bjargað varð, hvort heldur sem er í borg eða landsmálum.

Hver man ekki eftir því þegar ríkisstjórnin ætlaði að flytja inn stórhættulegt og eitrað útlenskt kjöt og útrýma bústólpum landsins í einni svipan?  Láta þjóðina liggja í salmónellu og viðbjóði bara til að menn gætu sparað einhverja aura við kaup á kjöti?  Nei, þá er nú betra að borða íslenskt og styrkja sveitunga sína, þó það kosti aðeins meira og sé ekki eins mikil "gæði".  Gæði eru ofmetin og sumt á fólk einfaldlega ekki að fá að velja um.

Ég treysti Guðna til þess að leiða næstu ríkisstjórn af myndugleik, og vona að hans fyrsta verk sem landsfaðir verði að setja lög og reglur sem meini almenningi að skuldsetja sig í botn.  Það sem við þurfum er virkilega sterk og öflug eftirlitsstofnun sem gætir þess að fólk taki ekki lán fyrir einhverjum bévítans óþurftum (sama fólkið og vildi kaupa ó-íslenskt kjöt, væntanlega) heldur láti sér nægja hina einföldu hluti í lífinu.  Ef einhver getur stöðvað bílífið og óhófið, þá er það Guðni í gegnum sterka ríkisstjórn og öflugt  löggjafarþing.

Virðingarfyllzt 


mbl.is Þingmenn eins og afgreiðslufólk á kassa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held það sé bara tímaspursmál hvenær stjórnin fellur.

En er ekki tími til kominn fyrir landsbyggðarfólk og þá sérstaklega bændur að taka hausinn út úr rassinum á sér og sjá það að það er enginn munur á Sjálfstæðisflokki og Framsókn, skil ekki þessa sveitarómantík að framsókn sé eitthvað fyrir litla manninn út á landi. Það er enginn munur á kúk eða skít, mundu það.

Birkir (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 15:49

2 Smámynd: Púkinn

Einkavæðing bankanna án eftirlits - var það ekki að neinu leyti Framsókn að kenna?

Hvað með lögin sem neyddu seðlabankann til að hækka og hækka stýrivexti, sem skapaði grundvöll fyrir jöklabréfin  - bar Framsóknenga ábyrgð á því heldur?

Óttalegt bull er þetta.

Púkinn, 5.11.2008 kl. 15:56

3 identicon

Hvar hefur þú búið frá því fyrir aldamót? Hefur þú heyrt talað um Finn Ingólfsson. Veistu hver Halldór Ásgrímsson er? Hefur þú kynnt þér lög um stjórn fiskveiða, þetta með kvótann? Hvað varð um Sambandið? Eða Samskip? Hvernig var staðið að einkavinavæðingu Búnaðarbankans?

Næst þegar gefin verður út íslensk samheitabók verða orðin "framsókn" og "spilling" sett þar sem samheiti. Tilveruréttur þessa flokks er ekki lengur til staðar. Þarna voru margir prýðismenn á árum áður (og reyndar til gott fólk í dag líka) en gjörðir flokksins undanfarinn einn og hálfan áratug eru með slíkum fádæmum að hann á ekki rétt á sér lengur.

Gestur H (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 16:04

4 Smámynd: Jón Einarsson

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur eru eins og svart og hvítt, gott fólk.  Einkavæðing bankanna heppnaðist mjög vel í alla staði, það var framkvæmdin á þeim eftir að hún fór fram sem fór miður, og það skrifast á Sjálfstæðisflokkinn, því sá flokkur fór með Seðlabanka og Fjármálaráðuneytið.  Framsókn færði landinu frelsi með einkavæðingu bankanna, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking klúðruðu því.

Ég held líka að menn ættu að hætta að hnýta í Finn Ingólfsson, því réttlátari mann og ráðvandari er varla hægt að finna.  Hann fór aldrei í manngreinaálit og sér líka um sína.  Það er meira en hægt er að segja um marga aðra.  Og ég þakka hreinlega fyrir að Valgerður var svo klók að einkavæða til einhverra sem hún þekkir en ekki einhverra bláókunnugra svörtupésa.  Ef þarf að einkavæða (sem ég er í sjálfu sér á móti), þá er betra að einkavæða til fólks sem þú þekkir og treystir en til einhverra sem geta gert guð-má-vita-hvað með hlutina.

Halldór Ásgrímsson var mikill maður og góður, og bjargaði svo að segja upp á sitt einsdæmi deyjandi sjávarútvegi á Íslandi.

Þessi gagnrýni ykkar er bara öfund og minnimáttarkennd, verð ég að segja.  Þegar horft er yfir þingheima eru það Guðni og riddarar hans sem bera höfuð og herðar yfir aðra. 

Jón Einarsson, 5.11.2008 kl. 18:12

5 identicon

Það var ekki fyrr en ég las svarið frá þér Jón að ég fattaði að þessi skrif þín eru bara djók. Þú færð prik fyrir skemmtilegan húmor og þér tókst að plata mig.

Hefðir þú sleppt þessu með Finn Ingólfsson hefði blekkingin gengið áfram, en það getur enginn verið svona blindur í alvörunni. Það kom upp um djókið hjá þér!

Gestur H (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband