Hvar eru landsfeður úr Framsókn? Þeir þurfa að bjarga okkur!

Nú þarfnast þjóðin Guðna Ágústssonar. Framsóknarflokkurinn er sverð og skjöldur íslenskrar alþýðu og þarf nauðsynlega að komast til valda til að hreinsa til þetta klúður. Ef það er eitthvað sem við Framsóknarmenn gerum vel, þá er það að koma landinu aftur á réttan kjöl eftir klúður hinna flokkanna, við höfum gert það í gegnum söguna. En njótum ekki sannmælis fyrir, því miður.

Auðvitað þarf þjóðin kosningar strax, mér finnst ótækt að hér sé kosið bara á fjögurra ára fresti, þegar klárlega þarf að kjósa mun oftar því eins og við sjáum eru margir sem krefjast kosninga. Er það ekki lýðræði að kjósa þegar fólkið krefst þess? Við í Framsóknarflokknum skorumst sko ekki undan, nú verður gefið í og við munum koma í veg fyrir svona óráðsíu í framtíðinni... hinu nýja Íslandi.

Við viljum byggja á landbúnaði og sjávarútvegi og hóflegri nýtingu vatnsafls til framleiðslu rafmangs til helstu nauðsynja. Í landinu eru flestir færir um að yrkja jörðina og sækja sjó, við gerðum það í hundruð ára og getum það enn. Það er auðvitað deginum ljósara að við þurfum ekki allt þetta pjátur og prjál sem drekkir okkur í nýmóðins þunglyndi. Það er hlutverk nýrrar ríkisstjórnar að létta þessum byrðum að landinu, endurreisa sannleikann og tryggja að fólk láti sér nægja hófsemi og nægjusemi.

Enginn þarf tvo bíla, mörg sjónvörp, eða tíðar utanferðir. Ég á t.d. 19 ára gamlan Volvo sem er í prýðilegu ástandi, á eitt gamalt sjónvarp og bara farið 1x til útlanda. Til útlanda er ekkert að sækja og við ættum að láta okkur nægja að njóta eigin lands.

Nú þurfum við að finna ALLA sem ábyrgð bera á núverandi ástandi, eða hið minnsta alla sem við teljum bera ábyrgð, refsa þeim grimmilega. Síðan þurfum við að byggja upp nýtt samfélag þar sem við stundum landbúnað til að hafa í okkur og á, sjávarútveg og viðlíka. Þannig getum við haft í okkur og á. Meira þurfum við ekki. Við þurfum bara Framsókn, og þá blessast allt hitt. Eins og það hefur alla tíð gert.


mbl.is Ekki hægt að taka aðra ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eigum við ekki líka að endurreisa ,,,SÍS,,

Res (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 21:14

2 identicon

já einmitt me,me,me,eru algjörlega siðblindur maður, nei við þurfum ekki á  að halda höfuðpaurunm,eða réttara sagt höfundana af þessum ólögum og lélegu siðgæði, en ég hef ekki miklar áhyggjur af því,Framsóknarflokkurinn verður ekki til eftir næstu kosningar !!!

ag (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 21:25

3 identicon

Gunnar Páll.

Ertu bara kjáni?

Veistu ekkert eða þykist þú ekkert vita?

Þeir sem trúðu því, sérstaklega stjórnarmenn í Kaupþingi, að allt væri í lagi og "eignastaðan  og lausafjárstaðan í lagi" hjá bankanum eru annað hvort kjánar eða jafnvel fáfróð fífl.

Því vil ég ekki trúa ég um þig.

Það var búið að liggja ljóst fyrir, í a.m.k. 2-3 misseri, að bankinn fengi ekki frekari  ódýra lánsfjármögnun erlendis frá.  

Bankinn var í reynd "gjaldþrotaefni" strax síðari hluta árs 2007, ef ekki fyrr.

Jákvæð, eignastaða bankans, staðfest af "löggiltum endurskoðendum" var bara að verulegu leyti hreinn tilbúningur, því skráðar eignir í útlánum reyndust miklu minna virði í reynd en sagt var og uppáskrifað. 

Varfærnissjónarmiðin voru lítil sem engin í eignamatinu í reikningum bankans. Endurskoðendurnir eiga líka að sæta ábyrgð,  þeirra uppáskriftir hafa verið hreint bull og jafnvel tilbúningur. 

Það veist þú væntanlega nú, og áttir að vita  fyrir mörgum mánuðum eða misserum, hefðir þú "nennt" að lesa og kanna með "krítískum" stjórnarmannshætti "grundvallarrekstrartölur bankans" frá einum mánuði til annars.

Fyrir hvað þáðir þú stjórnarmannslaunin?

Kaffiboð og meðlæti einu sinni eða tvisvar í mánuði, eða sjaldnar? Hvað voru stjórnarlaunin há, fyrir að drekka kaffi og eta meðlæti í hverjum mánuði?

Tókst þú bara trúanlegt það, sem þér var ef til vill sagt, af mönnum, sem voru  "ofurlaunamenn á ofurlaunabónusum" hjá bankanum, sem þú hafðir jú gagnrýnt?

Trúðir þú gagnrýnislaust Sigga og Hreiðari, Samskipsfólki og Bakkabræðrum og þeirra meðábyrgðarmönnum?

Hvar var skynsemi þín?

Þú virðist óneitanlega hafa verið óhæfur sem gangrýninn stjórnarmaður fyrir hönd þinna trúnaðarmanna, þ.e. laun- og lífeyrisþega VR.

Ábyrgð þín er óskapleg.

Hvernig getur þú horft framan í umbjóðendur þína?

Varst þú orðinn samdauna þeim sem þú áttir að hafa eftirlit með og hverra kjör þú hafðir opinberlega gagnrýnt?

Ég vorkenni þér.

Það kann aldrei góðri lukku að stýra að falla fyrir fagurgalanum þó "moldríkur" sé talinn.

Þú átt að segja af þér og það strax, eins og Þorgerður Katrín menntamálaráðherra og margir, margir fleiri, meira að segja margir nýráðnir ríkisbankastarfsmenn og ríkisbankastjórar-/stýrur.

Því miður virðist þú, og meira að segja menntamálaráðherrann, og margir fleiri ekki ennþá gera sér grein fyrir því óskaplega siðleysi, að ég tali nú ekki um þá lögleysu, sem virðist augljóslega hafa verið viðhöfð, fyrir æðstu og millistjórnendur bankans.

Ég skammast mín fyrir hönd okkar Íslendinga að svo lágt siðferð ráði hugarheimi menntamálaráðherra landsins eins og þín Gunnar Páll og allra annarra viðkomandi þessu máli.

Hvar er ykkar siðferðisvitund?

Þið hafið afbakað og útbíað heilbrigt markaðskerfi og heiðarlega viðskiptahætti.

Hver verður afleiðing af ykkar gjörðum í okkar þjóðfélagi?

Í burtu með ykkur öll og það strax.

Guðm. R. Ingvason 

Guðm. R. Ingvason (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 22:02

4 identicon

Sammála, endurvekjum Samvinnuhreyfinguna og nútímavæðum hana bara.

Soffía (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband