Hneyksli, skandall, fáheyrð svívirða!

Nú veit ég ekki hvað þessir stýrivextir þýða eða hvaða merkingu þeir hafa svona í praxís, en mér finnst þessi 18% vera rosalega há tala.  Það hreinlega getur ekki verið gott að hafa vexti svona háa.

Ég hitti mann í gær sem sagði að þetta væri gott fyrir sig, því hann ætti sparifé inni á bók og þar væru svo háir innlánsvextir að hann væri að hugsa um að leggja enn meira til hliðar en áður, til að njóta þessara háu vaxta.

Þvílíkt rugl, segi ég!  Hann veit ekkert í sinn haus (og ég sagði honum það).  Svona stýrivextir drepa alla og hann græðir ekkert á háum innlánsvöxtum.  Eru ekki allir að tala um að svona háir vextir bitni á öllum?  Af hverju ætti hann að vera undanskilinn eitthvað?  Ég gruna hann reyndar um að vera einhvern hrapp sem brýtur lög og snuðar okkur hin, því hann hefur það ágætt og virðist ekki vera í mjög vondum málum.  Hann getur ekki, og má ekki, sleppa svona vel, segi ég.

Ég skil ekki hvað öll þessi hugtök merkja, eða hvað einhverjir hagfræðingar segja.  Ég hef hins vegar mjög sterkar skoðanir á þessu öllu og við Davíð burt, ég vil kosningar, ég vil niðurfellingu verðtryggingar, burt með ríkisstjórnina, og stöðugleika.  Ég held svei mér að sá tími sé liðinn að fólk eigi að reyna að skilja hlutina og setja sig inn í þá, slíkt tekur tíma og fyrirhöfn, og við höfum ekki slíkt til umráða.  Nú þurfum við að finna sökudólgana og refsa þeim.  Við getum gert upp síðar hvort við höfum refsað réttu aðilunum og hvað þeir þá gerðu rangt.  Við vitum svo sem alveg hverjir eru skúrkarnir, það eru þeir sem fréttamenn hafa bent okkur á dag eftir dag, og af hverju ættu þessir fagaðilar fjórða valdsins eitthvað að skrökva að okkur?  Ef Egill Helgason eða Agnes Bragadóttir segja að einhver sé sekur, þá er það nógu gott fyrir mig.  Þau vita pottþétt sínu viti.

Þetta hefði aldrei gerst ef Framsókn hefði verið við völd.   


mbl.is Stýrivextir áfram 18%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig er það í sveitinni, næst hvorki útvarp né sjónvarp þarna hjá þér. Framsóknarflokkurinn er búinn að vera við völd (ásamt sjálfstæðisflokknum) síðustu 12 ár eða svo og það var stefna þessara flokka sem gerði útrásarvíkingunum kleift að setja þjóðina á hausinn.

Hins vegar er það alveg rétt hjá þér að finna þarf skúrkana og sjá til þess að þeir fái makleg málagjöld óháð í hvaða flokki þeir eru.

B.B. (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 10:27

2 Smámynd: Jón Einarsson

Af hverju að reyna að klína þessu á Framsókn?  Ég veit ekki betur en þegar við fórum frá stjórnarráðinu hafi verið bullandi góðæri.  Og svo kemur Samfylkingin í stjórn.... búmm... allt fer til fjandans.  Tilviljun?  Nei, ég held ekki.  Góðærið var Framsókn að þakka, við héldum aftur af Sjálfstæðisflokknum og stýrðum á rétta braut, og um leið og okkar naut ekki lengur við, og vanmáttugi flokkur Samfylkingarinnar komst til valda, þá voru við völd tveir getulausir flokkar og allt fór til fjandans.

En það er gott að sjá að fleiri eru mér sammála um að nú þurfi að leita uppi alla mögulega sökudólga og refsa.  Þegar menn eru svona reiðir þarf að hegna þeim sem maður telur að beri ábyrgð á ástandinu.  Í mínum huga gildir einu hvort menn hafi beint verið ábyrgir eða ekki, það er aukaatriði.  Ef menn fóru með hagstjórnina (eftir að við fórum úr ríkisstjórn) eða voru í einhvers konar útrás, þá er það umsvifalaust tilefni til refsingar og hegningar.  Við getum svo tekið okkur tíma síðar meir að fara yfir hvort við hengdum rétta fólkinu.  Auðvaldið í borginni ber pottþétt ábyrgð á þessu hvernig sem á það er litið.  B.B., þú ert kona að mínu skapi.  Ef þú átt einhvern tíma leið um sunnaverða Vestfirði ertu hjartanlega velkominn í kaffi og kleinur. 

Jón Einarsson, 6.11.2008 kl. 10:42

3 Smámynd: Jón Einarsson

Vandinn er sprottinn frá einstaklingum og einstaklingum skal refsað. Mér finnst gilda einu hvort þeir sem refsað er séu per se sekir um akkúrat þetta. Það þarf að refsa þeim sem hér ráða og ekki seinna en strax. Nú er ekki tíminn til að kanna hlutina og finna hver gerði hvað. Ég er almennt annarar skoðuna, en nú skal skjóta fyrst og spyrja svo. Framtíð okkar veltur á því.

Jón Einarsson, 6.11.2008 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband