6.11.2008 | 17:16
Nei, við þurfum stjórnmálamenn í bankaráðin!
Það yrði hræðilegt ef bankaráðin yrðu skipuð einhverjum "fag"aðilum. Ekki hefur þeim farnast vel hingað til. Sveiattan. Ég segi, við þurfum að skipa stjórnmálamenn í bankaráðin. Auðvitað þurfa allir flokkar að koma þar að málum, en tryggja þarf að almannahagsmunir séu hafðir í heiðri í bönkunum, ekki einhver bissnisshugsun. Lán skal veita þeim sem geta sýnt fram á að þeir ætli ekki að nota þau í einhverja vitleysu, og þjóðin sem heild verður að uppskera afrakstur lántökunnar. Annað er ótækt og býður upp á að einhverjir aðilar sanki að sér ríkidæmi á kostnað okkar hinna.
Við Framsóknarmenn höfum mikilvæga hluti fram að færa í nýju bankaráðin. T.d. hefur Finnur Ingólfsson víðtæka og góða reynslu af rekstri banka og hann væri tilvalinn sem bankaráðsmaður, jafnvel formaður bankaráðs,einhvers bankanna. Ef við gætum þess ekki að bankarnir séu í takt við pólitíkina er hætt við að bankarnir muni ekki sinna stjórnmálalegum markmiðum hverju sinni. Til að hér verði hagsæld þurfa bankarnir að stýra neyslu fólks og hegðun í samræmi við taktfasta göngu stjórnvalda hverju sinni, að sjálfsögðu undir styrkri ríkisstjórn Framsóknar eftir næstu kosningar.
Hver getur t.d. mælt á móti því að tilvalið sé að bankarnir láni í mun meiri mæli en áður til bænda og sjófarenda? Slíkt er mikilvægt framtíð landsins, að auðvelda aðgang bænda að fjármagni, en hefur ekki mætt skilningi í bankakerfinu. Nú er lag! Með Framsókn við völd í bönkunum myndum við sjá aukin framlög í gegnum bankakerfið til kúabænda, sauðfjárbænda, og blómabænda. Að ekki sé minnst á öll þau sóknarfæri sem felast í t.d. refarækt og minkarækt, þar sem við getum grætt milljarða á komandi árum. Nú eða gríðarlega sóknarmöguleika í laxeldi (nóga höfum við firðina og strendurnar til að gera góða hluti í slíkum greinum). Án aðkomu stjórnmálamanna í rekstri bankanna getum við gleymt slíkum bjargráðum, og fólk myndi hirða peningana okkar úr bönkunum til að kaupa sér fleiri bíla, sjónvörp, sumarhús, og annan óþarfa.
Ég hafna því að bankarnir verði reknir á öðrum forsendum en pólitískum, því pólitíkin er best til þess fallin að sjá um okkur landsmenn til framtíðar. Við eigum ekki að þurfa að horfa fram á það að taka ákvarðanir á hverjum degi um okkar líf sem geta haft áhrif til ills ef illa fer, það er ósanngjarnt og skapar eymd og dregur þrótt úr okkar þjóð. Ef við höfum miðlæga stofnun sem tekur allar meiriháttar ákvarðanir fyrir okkur verða þær ákvarðanir betur upplýstar og mun líklegri til að koma okkur til góða. Og þar koma nýju ríkisbankarnir inn í. Með öflugri tengingu á milli slíkrar ákvarðanatökustofnunar og ríkisbankanna má koma í veg fyrir að almenningur skuldsetji sig eða kaupi einhvern tóman óþarfa og sólundi í bruðl með lánsfé. Stjórnmálaflokkar munu leggja línurnar fyrir landsmenn alla og aðstoða okkur í gegnum bankakerfið til að forðast freistingar og sýna ráðdeild.
Og ég hef enga trú á öðru en að við sem þjóð munum átta okkur á mikilvægi Framsóknarflokksins í þeirri viðleitni, að hugmyndafræði flokksins muni fara vel saman við þá stefnu sem við sem einstaklingar og þjóð eigum að taka.
![]() |
Ný bankaráð fyrir vikulok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég ætla rétt að vona þín vegna að þessi grein sé kaldhæðnislegt grín því ef þetta er þín raunverulega skoðun á hlutunum þá langar mig til þess að vita hvar þú varst þegar að bankarnir voru í eigu ríkisins og spilltir stjórnmálamenn sem þá mynduðu stjórnir bankanna sóuðu skattfé líkt og það væri enginn morgundagur. Ef þú varst af einhverjum ástæðum læstur inn í helli á þessum tíma þá er þér fyrirgefið en ef svo er ekki þá þarftu virkilega að fara að kynna þér málin betur.
Jón (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 17:43
Þú hlýtur að vera að grínast! Það vantar ekkert hjá þér nema gæsaganginn utan við Alþingi og hrópa SIEG HEIL!
Egill (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 17:50
Jón, þegar bankarnir voru í umsjón ríkisins var ekkert Icesave og engin kreppa. Eins og Stefán Ólafsson, nágranni minn og kumpáni, hefur bent á hefur skattbyrði OG ósanngirni aukist í þjóðfélaginu aukist síðan bankarnir voru einkavæddir (sem ég rek beint til þess hvernig bankarnir voru reknir, ekki að þeir hafi verið einkavæddir sem slíkir enda var það Framsókn sem stóð að því). Ergó, ef við færum bankana aftur undir ríkið þá mun skattbyrði MINNKA og jöfnuður AUKAST!
Mér finnst það ekkert grín. Nú þegar allir eru sammála um að einkavæðingin hafi mistekist og bankarnir aftur komnir, sem betur fer, í eigu ríkisins, þá geta hlutirnir bara batnað. Jújú, einhverjir munu verða fúlir, þeir sem ekki geta keypt sér kastala í Frakklandi og 50 milljón króna bíla á færibandi, en við (almúginn og bændafólkið) munum hafa miklu betra aðgengi að lánsfé í hlutina sem skipta miklu máli, eins og uppbyggingu á landsbyggðinni og slíkt.
Ertu virkilega að ýja að því að þegar okkar ástkæru landsfeður héldu um pyngjuna hafi hér verið spilling og eymd? Líttu í kringum þig maður! Þetta voru menn sem tóku til hendinni og létu ekki hvern sem er fá barasta pening, rétt si svona! Það er einmitt vandamálið í dag! Hver sem er gat labbað inn í banka og fengið lán fyrir hvaða óþarfa sem var, með því einu að bara sýna fram á að kannski gæti hann borgað til baka! Og þannig jókst græðgin og ójafnvægið. Nei, nýtt bankakerfi á að byggja hinu besta af hinu gamla ríkiskerfi; bankaráðum sem láta bara fólk fá peninga sem stjórnarmenn þekkja og treysta og vita að sóa ekki peningunum í eitthvað rugl. Þannig bankar eru traustir og góðir og vel reknir. Ég kalla það sko ekki að sóa skattfé að lána þeim sem maður þekkir peninga til hluta sem maður veit að eru skynsamir fyrir þjóðina. Eða vilt þú að einhver Jón Jónsson úti í bæ geti labbað inn í ÞINN banka og fengið lán til að kaupa sér glænýjan Range Rover fyrir 20 milljónir út á það eitt að geta sýnt fram á að hann geti borgað peninginn til baka á 8 árum??? Frekar en sauðfjárbóndinn sem horfir á niðurskurð á búfénaði sínum vegna riðu fái sömu fjárhæð til að reyna að koma fótum undir rekstur bús síns með t.d. refarækt? Nei, segi ég. Ekki fleiri Range Rovera. Niður með auðvaldið. Lánum til þeirra sem þurfa lánin, ekki til þeirra sem langar í peningana og þykjast geta borgað til baka. Slíkt væri bissniss banki, ekki ríkisbanki. Og bissnissbankar eru búnir að vera, það hefur sannast.
Jón Einarsson, 6.11.2008 kl. 17:58
Uppúr hvaða holu skreiðst þú eiginlega? Þú hlýtur að vera grínast! Ef ekki, skríddu þá aftur ofan í holuna þína og skjóttu þig í leiðinni.
smg, 6.11.2008 kl. 22:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.