Fjölga þarf aðstoðarmönnum þingmanna

Einhverjar raddir hafa heyrst þess efnis að þingmenn eigi að fækka aðstoðarmönnum sínum, eða losa sig alveg við þá. Það væri stóvarhugavert. Ef nokkru sinni var þörf fyrir aðstoðarmenn þingmanna er það þegar svona mikið mæðir á þeim og þá þurfa þeir hið minnsta 1 aðstoðarmann hver. Sumir fleiri. Hækka þarf laun aðstoðarmannanna líka til að fá inn bestu einstaklingana svo við fáum bestu þingmennina í slaginn.

Aðstoðarmenn þingmanna eru eitt það besta sem gerst gat, ef frá er talin útvíkkun utanríkisþjónustunnar, sem má heldur ekki dragast saman. Nú fyrst er þörf á fjölgun sendiherra og sendiráða til að bera hróður landsins um heim allan, og ættum við að gefa hraustlega í frekar en hitt. Fjölga í sendiráðum sem til eru nú þegar og bæta við sendiráðum í ríkjum um víða veröld. Það hefur sannast í yfirstandandi orrahríð hversu gríðarlega mikilvæg utanríkisþjónustan hefur reynst við að leiðrétta rangfærslur erlendis. Betur má en duga skal, segi ég. Styrkjum þingmenn og utanríkisþjónustu, öðruvísi verður vandi hinn mesti að komast út úr vandræðunum.


mbl.is Frumvarp um ábyrgðarmenn lagt fyrir Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er sammála því að þingmenn og ráðherrar eigi að hafa aðstoðarmenn og þess vegna fleirri en einn, því þessir menn hafa engin veginn bolmagn, gétu né kunnáttu til að valda sínu starfi sjálfir. Einnig má alveg borga þessum mönnum almennilega til að fá hæft fólk inn úr eingageiranum (ef einhver er eftir).

Stjórnendur þessa lands eru flestir einhverjir félagsmálaguttar með takmarkaða menntun og kunnáttu til að stjórna einu eða neinu, tek sem dæmi nafna minn og flokksbróður Jóns Einarssonar óðalsbónda.

Í raun ætti að ráða forstjóra, framkvæmdastjóra og fjármálastjóra Íslands og reka þetta eins og fyrirtæki en ekki eins og sandkassa.

Birkir (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 18:28

2 identicon

Já, ég er sammála því að það megi fjölga aðstoðarmönnum þingmanna til muna.  Svo er spurning hvort að þessir aðstoðarmenn þurfi ekki líka aðstoðarmenn.

Og samfara því að efla utanríkisþjónustuna með stórfelldri fjölgun sendiráða þá vil ég að skoðaðir verði möguleikar hvað varðar útrás seðlabankans.  Ég held að seðlabankinn gæti aðstoðað mörg erlend ríki hvað varðar peningastjórn og við þurfum að nýta þá gífurlega verðmætu þekkingu sem búið er að byggja upp í seðlabankanum. 

Fannar (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband