Heyr Geir! Kórrétt og skynsamt

Auðvitað þurfum við ekki þetta lán, ef við höfum eitthvað lært undanfarnar vikur þá hlýtur það að vera það að peningar færa enga hamingju. Við ættum að gefa þessum IMF pésum langt nef og afþakka alla aðstoð erlendis frá ef hún kostar þetta, við búum í gjöfulu landi og hér er vinnufært fólk sem getur hæglega flust í sveitir landsins og byrjað að yrkja jörðina og sækja sjó.

Við gætum t.d. stofnað stórar bújarðir þar sem fólk gæti stundað búskap og fengið hluta afrakstrar landsins í sinn hlut fyrir sig og sína, afgangurinn færi til ríkisins. Sama á við um sjósókn, við gætum stofnað fyrirtæki í sjávarplássum landsins og gert út smærri báta, hluti aflans færi kæmi svo í hlut sjómannanna sem hefðu þannig mat fyrir fjölskyldur sínar.

Þetta er það sem mun sjá okkur farborða í framtíðinni og við erum ekkert of góð til að stunda alvöru vinnu svona til tilbreytingar.


mbl.is Við hættum frekar við lánið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinbjörg Guðmarsdóttir

Heyr heyr, meira að segja "ég "væri til í að leggjast á fjóra fætur og sá kartöflum í gróðurhúsi í vetur. Ég væri líka til í að fara á bát og skaka eða kokka fyrir mannskapinn. Ég væri líka til í að salta í tunnur eða skúra gólf, eða skeina gamalmennum (hef reyndar gert það oft áður), en því miður bíður ekki heilsan uppá svona lúxus í dag, þó ég þrái það heitast af öllu að geta lagt lið í dag. það vantar ekki viljann.

Sveinbjörg Guðmarsdóttir, 6.11.2008 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband