Vissulega á að kjósa strax og þessa hluti vil ég sjá:

Það er klárt að umboð stjórnarinnar er runnið út, og þjóðin kallar á Framsóknarflokkinn að leiða okkur út úr vandanum.  Ég legg til að kosið verði sem fyrst og að Framsókn verði valin til að leiða næstu ríkisstjórn.  Nokkrir hlutir sem ætti að setja á oddinn til að hefja okkur til vegs og virðingar:

 

1) Stórkostleg efling landbúnaðar og sjávarútvegs.  Lögð verði áhersla á stór bú og stórar útgerðir þar sem almenningi gefst kostur á að yrkja jörðina og sækja sjó og fá í sinn hlut hluta uppskeru og afla sem laun fyrir sína vinnu.  Þannig er matvælaöryggi landsmanna tryggt og enginn þarf að svelta.

2) Ríkið kaupi allt húsnæði á landinu og leigi aftur til fólks á hóflegum verðum.  Steinsteypuruglið þarf að stöðva ekki síðar en strax.

3) Ríkið setji á fót sérstaka Ákvarðanatökustofnun þar sem teknar verða ákvarðanir fyrir fólk (að sjálfsögðu í samráði við það) um stærstu ákvarðanir lífsins, t.d. eins og varðandi húsnæði, skólagöngu, barneignir, bílakaup, utanlandsferðir og fleira.  Stofnunin mun fara yfir stöðu fólks í hverju tilfelli fyrir sig og útbúa leyfi til handa landsmönnum til að ráðast í fyrrgreindar aðgerðir eða fjárfestingar, og svo muni ríkisbankarnir sjá um fjármögnun þeirra hluta.

4) Lögð verði áhersla á þjóðfélagslega uppbyggilega umræðu og aðgerðir, t.d. verði ekki heimilt að ráðstafa tekjum og safnaði í fánýta hluti og lúxus; bankarnir t.d. láni ekki fólki fjármagn til kaupa á lúxusbílum út á það eitt að það muni borga peningana til baka, heldur láni frekar til atvinnusköpunar á landsbyggðinni, s.s. refarækt og fiskeldi.  Hluti sem skapa verðmæti og vinnu, sér í lagi í hinum dreifðu byggðum.

5) Ríkið fái fjármagn til að kaupa öll fyrirtæki á landinu sem hafa fleiri en 30 starfsmenn, og tryggja þannig atvinnuöryggi heimilanna.  Ef ríkið á þessi fyrirtæki er auðsótt mál að tryggja að starfsmönnum þeirra verði ekki sagt upp og þannig heldur fólk sinni vinnu og atvinnuleysi verður mun minna en ella.  Þess utan gæti ríkið aðlagað rekstur fyrirtækja að þjóðfélagslegri skyldu s.s. að byggja verslunarmiðstöðvar í smærri bæjarfélögum þar sem boðið væri upp á sömu valmöguleika og vöruúrval.   Ennfremur gæfist þarna kostur á að lækka laun starfsmanna margra þessara fyrirtækja sem hafa ofurlaun, mér finnst t.d. að 250þ séu fín laun fyrir fólk og engin ástæða til að borga fólki meira.

6) Ríkið stórhækki barnabætur, vaxtabætur, ellibætur, öryrkjabætur, og annað slíkt.  Við þurfum að hækka þessa bætur upp í 250þ á mánuði, sömu fjárhæð og hæstu lögleiddu laun í landinu, til að tryggja jöfnuð.  Þannig sitja allir við sama borð.

Ég efast ekki um að þessir hlutir muni hljóta hljómgrunn meðal landsmanna í komandi kosningum, enda eru þeir í anda stefnu míns flokks.  Allir jafnir, árangur áfram og ekkert stopp! 


mbl.is Vaxandi krafa um kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hvers að vera að kjósa strax þegar þjóðin mun hvort sem er kjósa sömu flokka til valda aftur.  Algjör óþarfi.  Leyfa þessu fólki bara að klára verkefnin.  Nóg er að gera.

Skarfur (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband