Tuð er þetta, smávegis uppþot hafa aldrei sakað neinn!

Við sveitafólkið látum ekki plata okkur svona. Auðvitað á að mótmæla og tuska aðeins aðra til. Gott er grýta eggjum og jafnvel öðrum lauslegum hlutum. Það hefur aldrei skaðað neinn.

Það er líka mín skoðun að þegar allt um þrýtur er besta leiðin til að fá aðra til að taka mark á manni og hlýða á er að ganga af göflunum aðeins og stunda smávegis skemmdarverk og ofbeldi. Við tókum oft til hendinni á þann hátt í sveitinni den, og alltaf fengum við það sem við vildum.

Ég held að best sé að fleiri mæti á næstu mótmæli og að fleiri grípi til ofbeldis. Gott væri að velta við kyrrstæðum bílum og kveikja í, það klikkar aldrei.

Annars tel ég að hinn stórkostlegi stjórnmálaskörungur Jón Baldvin mætti alveg hræra meira upp í fólki en hann gerir, hvetja til meiri átaka og upphlaupa. Mér finnst bara ekki nóg að gert.

Auðvitað kemur svo fólk og vælir og kvartar, löggan og svona, en það eru bara aumingjar sem eru á móti okkur sem er nóg boðið. Við þurfum að finna sökudólga og það strax, og gildir einu hvort þeir séu sekir eða ekki. Við þurfum blóð og blóð er það sem við krefjumst! Lifi byltingin!

Uppþot og mótmæli, eins og ég sagði, hafa aldrei skaðað neinn og lýkur alltaf á því að við sem mótmælum fáum okkar framgengt átakalaust og friðsællega. Ef það þarf að ganga í skrokk á valdhöfum og brenna nokkrar byggingar, þá veri það svo, stundum þurfum við ofbeldi og skemmdarverk til að ná fram friðsælum kröfum okkar.

Við sem mótmæltum í dag krefjumst þess, öll sem eitt, að Framsókn taki við stjórn landsmála hið snarasta. Hver dagur sem líður án þess að við Framsóknarmenn stöndum vaktina í stýrishúsi þjóðarskútunnar er dagur sem við færumst nær glötun. Við höfum bjargað þjóðinni oft áður og munar ekkert um að gera það aftur. En til þess að svo megi vera þurfa þessi mörg þúsund sem voru í bænum í dag (löggan segir 2 þúsund, ég taldi hið minnsta 8 þúsund) og sem kröfðust þess að Framsókn kæmist til valda, að láta heyra hærra og hærra í sér. Ef við þurfum að grýta byggingar, ganga í skrokk á þeim sem ekki eru okkur sammála, og eyðileggja eigur hér og þar um borgina.... þá verður að hafa það. Öðruvísi náum við ekki fram friðsælum kröfum okkar um sátt og samstöðu og kærleika. Kjarna hugmyndafræði okkar Framsóknarmanna.

Lifi byltingin - finnum sökudólgana!

mbl.is Geir Jón: Lítið má út af bregða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Jónsson

Jón: láttu renna af þér ölæðið maður áður en þú bloggar, þvílíka steypu og hér ber að líta.

Magnús Jónsson, 8.11.2008 kl. 17:09

2 Smámynd: Jón Einarsson

Þetta er alls ekki steypa, stundum þarf að beita ofbeldi til að ná fram friðsælum kröfum og aðgerðum. Þannig er það nú. Ertu eitthvað ósáttur við að fólk hafi grýtt Alþingishúsið og ógnað lögreglu? Er það ekki einmitt rétta leiðin til að ná því fram sem við viljum? Er það ekki einmitt hornsteinn lýðræðis að almúginn geti gert uppreisn og brotið lög og reglur, stundað skemmdarverk og annað í þá veruna til að ná fram vilja sínum? Það tekur bara of langan tíma að kjósa og fara í gegnum það allt, við viljum blóð núna, við viljum að sökudólgar verði fundnir strax. Við getum rannsakað hlutina síðar og komist að hinu sanna. Sannleikurinn getur beðið, við viljum hefnd!

Jón Einarsson, 8.11.2008 kl. 17:31

3 identicon

Magnús ! aA skrifum þínum að dæma sýnist mér þér vera alveg sama þótt kerfið taki þig í ósmurt rassgatið !

Kalli (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 17:54

4 Smámynd: Magnús Jónsson

Jón: það sem þú ert að predika er anarkismi, og á ekkert skylt við lýðræði, ef þú skilur það ekki þá ert vangefin, eða eitthvað ennþá verra.

Kalli: þú ert aldeilis málefnalegur eða hitt þó heldur, hvað rekur fólk eins og þig áfram eiginlega, ekki eru það gáfurnar svo mikið er víst.  

Magnús Jónsson, 8.11.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband