9.11.2008 | 18:45
Ekki hægt að ætlast til þess
Nú er Bleik brugðið. Hvernig er hægt að saka ráðherra um að hafa gert mistök? Eru ráðherrar ábyrgir fyrir ÖLLU sem þeir eiga að hafa umsjón með? Jújú, ráðherra er yfirmaður FME, en FME klikkaði þarna að koma þessu ekki til skila til Björgvins að hann skyldi það og vissi um.
Það er ekki hægt að ætlast til þess að ráðherrar viti af öllu svona löguðu, þeir eru uppteknir menn sem hafa í mörg horn að líta, og ómögulegt fyrir þá að vita af öllu. Þess vegna er ekki hægt að draga þá til ábyrgðar þegar eitthvað klikkar. Undirmennirnir bera alla ábyrgð, það er klárt.
Annars er Björgvin búinn að lyfta grettistaki, maður sér hversu lítið hann kann í viðskiptum og viðlíka, og miðað við það sýnir hann frábæra takta sem yfirmaður allra viðskipta og bankamála í landinu. Það er ekki hver sem er sem getur stýrt svona batteríi í gegnum svona ólgusjó án þess að hafa vit á málaflokkunum. En Björgvin tekst það.
Annars finnst mér að við ættum að fá inn Framsóknarmanninn Jón Baldvin til að leiða þjóðina, hann er eins og ferskur vindur í umræðuna, með nýstárlegar skoðanir og hugmyndaríkar lausnir.
![]() |
FME: Upplýsti ekki ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
:)
Tombob (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 19:58
Jaaaá, þú ert að grínast! :) Það hlaut að vera...
Sigrún (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 20:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.