10.11.2008 | 16:15
Látum ráðherrana í friði, hættum að trufla framkvæmdavaldið
Það er ótrúlegt hvað menn geta atast mikið í ráðherrunum. Er virkilega hægt að ætlast til þess að ráðherrar viti um alla hluti sem fara fram í ráðuneytum þeirra? Ég held nú síður. Þetta eru menn sem eru uppteknir og á fundum daginn út og inn, og það er einfaldlega ekki hægt að ætlast til þess að þeir séu alltaf með puttana á púlsinum.
Björgvin og Árni hafa nóg á sinni könnu svo þeir séu ekki að vasast í því sem undirmenn þeirra eru að gera, og bera örugglega fulla ábyrgð á. Ef Árni vissi ekki af þessu með Icesave, þá er það bara svo. Enginn skaði skeður. Það ætlast enginn til þess að ráðherrar séu allt í öllu og beri ábyrgð á sínum málaflokkum. Þeir gera eins og þeir geta. Og svo verðum við líka að virða þeim það til tekna að þeir eru, Árni og Björgvin altsvo, dýralæknir og heimspekingur. Og sem slíkir geta þeir ekki skilið endilega alla þá flóknu hluti sem fara fram í þjóðfélaginu.
Nú er tvennt sem við þurfum að gera. Standa þétt að stjórnvöldum og draga öll í sama átt. Hætta að leita að sökudólgum og virkja reiðina! Hitt sem við þurfum að gera er að efna strax til kosninga og velja nýja leiðtoga. Uppgjör þarf að fara fram hið fyrsta og draga þarf hina seku til ábyrgðar, eigi síðar en strax!
Klárlega er eini flokkurinn í landinu með óflekkað mannorð og reynsluna til að leiða okkur inn í framtíðina Framsókn. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bera alfarið og eingöngu ábyrgð á ástandinu eins og það er núna, Vinstri Grænir eru óábyrgir í málflutningi og sífellt í mótsögn við sjálfa sig. Hver man ekki eftir því þegar helsta baráttumál þess flokks var að klæða hvítvoðunga í ókynbundna liti? Frjálslyndir eru uppteknir af því að hafa Ísland fyrir Íslendinga, og kvóta. Eftir standa Framsóknarmenn, sverð og skjöldur þjóðarinnar.
Við í Framsókn skiljum vel þá ábyrgð sem felst í því að vera ráðherra, og hversu vel menn þurfa að vera að sér í sínum málaflokkum. Sérþekking og fullkomin ábyrgð er það sem kallað er eftir í góðum ráðherra. Það færum við til málanna í hinu Nýja-Íslandi.
![]() |
Ráðherrarnir koma af fjöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bera Framsóknarmenn enga ábyrgð?!? Þeir voru í ríkisstjórn í 12 ár!!! Og hleyptu allri einkavinavæðingarvitleysunni af stað ásamt Sjálfstæðisflokknum...
Baldur Ragnarsson (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 16:32
Framsókn er klíkuflokkur, og ef maður er ekki af réttum ættum verður maður alltaf utangátta. Ég er t.d mjög illa ættuð því faðir minn heitinn sveik lit.
(IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 16:38
Sæll Jón,
það eru nokkrar mótsagnir í blogginu.
Þú segir á einum stað:"Hættum að leita að sökudólgum",
og síðan segirðu:"Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bera alfarið og eingöngu ábyrgð á ástandinu...".
Mig langar að benda þér á að fFamsóknarflokkurinn hleypti öllu í bál og brand með Sjálfstæðisflokknum á síðustu árum. Hann er orðinn marklaus með öllu. Hann kaus verðbólgu fremur en atvinnuleysi. En allir vita að atvinnuleysi kemur í kjölfar verðbólgu. Hann kaus íslenska krónu og hélt því fram að með henni myndum við taka á okkur kjaraskerðingu frekar en atvinnuleysi. Eitthvað hefur það nú brugðist.
Hinn mikli óstöðugleiki í efnahagslífinu gerði Ísland of áhættusamt fyrir erlenda aðila að lána okkur og of lítill Seðlabanki gat ekki stutt við bankana. Ber Framsóknarflokkurinn enga ábyrgð, sem gerði ekkert draga úr trausti erlendra aðila á Íslandi og íslensku krónunni síðan 2004?
Ef höfundur ætlar að hætta að leita að sökudólgum þá ætti hann að sýna gott fordæmi.
Lúðvík Júlíusson, 10.11.2008 kl. 16:42
Framsóknarflokkurinn eini flokkurinn með óflekkað mannorð??
Á hvaða lyfjum ert þú?!
Illugi (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 02:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.