Af hverju mínar hugmyndir eru bestar

Ég er búinn að hugsa þetta soldið.  Auðvitað á að kjósa og það strax.  Annað er einfaldlega ekki möguleiki í stöðunni.  Það er mín skoðun, og ég er viss um að ég hef ekki ranga skoðun eða vitlausa skoðun (því þá myndi ég skipta um skoðun, ekki satt).  Og þess vegna er sú skoðun sem ég hef sú besta sem hægt er að hafa hverju sinni, og þar af leiðandi besta skoðun fyrir þjóðina.  Ef þjóðin er ekki sammála mér, þá hefur hún einfaldlega rangt fyrir sér og þá þarf styrka hönd til að leiða hana á rétta braut. 

Bjarni er bakarinn sem hengdur var fyrir smiðinn, því miður.  Þar fer framsýnn og nútímalegur Framsóknarmaður sem hefur skýra sýn til framtíðar.  Nú verðum við Íslendingar að stóla á Guðna einan í þeirri sókn sem við þurfum að blása til.  Guðni á að sjá um að koma landinu úr þeim ógöngum sem við erum í, t.d. með því að stórefla landbúnað og sjávarútveg, og samræma þjóðina til velferðar.  Aðrir flokkar eru ófærir um slíkt.

Mínar tillögur eru t.d. þær að skipuð verði Ákvarðanatökustofnun Ríkisins þar sem fólk getur fengið leyfi og leiðbeiningar frá hinu opinbera um ýmis mikilvæg málefni, s.s húsnæðiskaup, menntun, barneignir og annað slíkt.  Tekið verði tillit til stöðu og búsetu, og þannig tryggt að fólk sé ekki að mennta sig til einhvers óþarfa, kaupa hluti sem það hefur ekkert með að gera (og skapa þannig bruðl í kerfinu og auka ójöfnuð), og eignist börn í samræmi við getu ríkissjóðs hverju sinni til að greiða barnabætur og fæðingarorlof.  Allt saman hlutir sem þarf að koma undir eina stjórn til að tryggja hér stöðugleika.

Landbúnaðurinn er stórlega vannýtt grein á Íslandi, ég legg til að fólk verði flutt í sveitir landsins og fái þar vinnu á ríkisreknum jörðum við að skapa matarforða í kistur landsmanna.  Að launum fær fólk húsaskjól og hluta af uppskeru til að sjá sér og sínum farborða.  Á þann hátt fær stór hluti landsmanna að njóta dýrðlegrar búsetu í fegurstu sveitum landsins og kemst í tengsl við rætur sínar og arfleifð.  Sama gildir um sjávarplássinn, við þurfum ríkisútgerðir sem ráða til sín sjómenn sem svo fá húsaskjól og aflahlutdeild í skiptum fyrir vinnu sína.  Þannig komumst við í tengsl við okkur sjálf, landið, miðin, og söguna.

Við þurfum að koma í veg fyrir bruðl og óþarfa sem gerir ekkert annað en að auka á eymd þjóðarinnar og er uppspretta þeirra vandamála sem við nú glímum við.  Fólk þarf ekki 2 bíla á heimili, mörg sjónvörp, nýmóðins innréttingar, eða mörg pör af skóm.  Þegar ég var ungur var ekki til bíll á heimilinu, aðeins eitt sjónvarp sem horft var á 2 daga í viku, og ég átti bara eitt par af hvunndagsskóm og eina spariskó.  Ég var ánægður og þurfti ekki meira.  Af hverju þurfa aðrir landsmenn eitthvað umfram þetta til að lifa góðu lífi?

Nei, nú er nóg komið, við þurfum að hætta að leita að sökudólgum og benda á aðra en okkur sjálf.  Við þurfum að taka til hendinni og standa saman.  Hverfa til grunngildanna, til sögunnar.  Til sveitanna og sjávarins.  En umfram allt að finna þá sem bera ábyrgð á því hvernig komið er og draga til ábyrgðar.


mbl.is Guðni: Bjarni axlar ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski ættir þú að fara að kjósa rétt...!

Og ég kannski líka....

Leifur (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband