11.11.2008 | 14:50
Heyr, heyr. Óþarfa hnútukast í þessa tvo
Kann fólk enga mannasiði? Hvað er fólk úti í bæ að hafa skoðanir á því hverjir stjórna landinu og hverjir ekki? Ég veit ekki betur en að Gylfi hafi fengið að kjósa 2007 eins og aðrir og fái að kjósa aftur 2011, og getur hann ekki haldið sig á mottunni þess á milli? Hann er ekki að hjálpa einum eða neinum með því að rjúka svona fram með rugl sem hann hefur ekkert umboð til að halda fram.
Árni og Björgvin hafa ekki gert neitt rangt í sinni valdatíð. Undirmenn þeirra hafa gert mörg mistök, því miður, og skrifast það á stjórnvöld og þá ráðherra sem stýra stofnunum þeim sem þeir starfa hjá, en Árni og Björgvin eru saklausir af öllu.
Árni er gríðarlega upptekinn um þessar mundir og sést því lítið, ég veit það fyrir víst. Hann vinnur sinn fulla vinnudag og hefur lítinn tíma til að baða sig í ljósi athyglinnar og fjölmiðla, enda er það ekki staður fyrir ráðherra á erfiðleikatímum. Þeir eiga að vera í sinni vinnu, með sínum starfsmönnum og ekki á blaðamannafundum hist og her.
Björgvin er líka upptekinn og hefur í nógu að snúast að vera í sviðsljósinu og á blaðamannafundum. Það er sjaldan mikilvægara en akkúrat núna að ráðherra, á þessum erfiðleikatímum, sé sýnilegur og í fjölmiðlum, með blaðamannafundi og viðlíka, og segi sína skoðun á mönnum og málefnum. Það gerir Björgvin.
Björgvin er uppfullur af hugmyndum, sumir myndu segja að hann væri að springa af hugmyndum um hvernig best sé að ráða bug á vandanum. Hann vill t.d. skipa nefndir. Sem er alltaf góð leið til að leiða mál til lykta. Hann sýnir líka þá fyrirhyggju að vera ekki að ræða endilega allar sínar hugmyndir við embættismenn og samflokksmenn sína, enda gæti slíkt tafið fyrir, heldur rýkur með þær beint í grasrótina um leið og þær fljúga honum í hug. Virkt almenningslýðræði þar!
Það er klárt að hinir og þessir embættismenn innan stjórnsýslunnar hafa gert mistök. Þær stofnanir þarf að skoða sérstaklega og ráðherrar sem fara með t.d. bankamál og efnahagsmál eiga skilyrðislaust að segja af sér vegna þeirra mistaka sem undirmenn þeirra hafa gert. En að veitast að Árna og Björgvin með þessum hætti stoðar ekkert. Þar er bara verið að persónugera vandann og skella skuldinni á ráðherra sem bera enga ábyrgð á þessum afglöpum. Ég hvet Árna og Björgvin til að sitja sem fastast og láta ekki öfundarraddir smáborgaranna slá sig út af laginu. Þeir eiga að halda áfram sinni gæðavinnu og láta æðstu yfirmenn þeirra stofnana sem helst hafa verið gagnrýndar taka pokann sinn.
![]() |
Vegið ómaklega að ráðherrum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.