17.11.2008 | 16:21
NEEEEEEIIIIIIIIIiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.........
Þetta er án efa einn svartasti dagur íslenskrar sögu, við missum mesta hugsjónamann og leiðtoga af þingi. Enginn hefur verið eins framsýnn og nútímalegur í hugsun síðan Einar Ben var og hét.
Það gat nú verið að umræðan um ESB myndi verða þessum mikla leiðtoga að falli, að hann skuli vera einn eftir í því áður fámenna liði sem stóð vörð um sjálfstæði lands og þjóðar. Menn hafa hárrétt fyrir sér að ESB sé dauðadómur yfir landi og lýð, við yrðum í raun útnári í Evrópu, engum til gagns og öllum til ama.
Framsóknarflokkurinn er óflekkaður í tímanna rás, og Guðni átti stóran þátt í að gera íslenskan landbúnað að þeim tæknivæddasta og nútímalegasta í heimi. Þökk skal hann fyrir hafa.
Guðni er gumi mestur
Góður, betri - nei, bestur
Hans stjórnvisku nú landið glatar
Og lýður í lágdeyðu ratar
ESB er að sjálfsögðu þjóðþrifamál og synd að Guðni skuli ekki leiða þjóðina inn í það farsæla samband á komandi árum. Það er aldrei að vita nema maður leggi á sinn klár og haldi til byggða og bjóði sig fram sem formann í þessum landsins óflekkaða flokki.
Guðni segir af sér þingmennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er ástæða til að óska Guðna velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Það er sjónarsviftir af honum fyrir skemmtilegheitin. En með þessari afsögn sinni hefur hann líka unnið þjóðþrifaverk. Hann var í raun óþurftamaður á þingi. Það sama má reyndar segja um Framsóknarflokkinn í heild sinni. Hann er óþurftarflokkur. Sú pólitíska spilling sem grafið hefur um sig í áratugi hér á landi er ekki hvað síst Framsóknarflokknum að kenna og hann hefur aldrei reint að breita því enda hefur hann grætt á spillingunni. Það besta sem mundi gerast fyrir íslensla pólitík og reyndar það nauðsynlegasta er að framsóknaflokkurinn hverfi alveg og Sjálfstæðisflokkurinn klofni.
Grétar Einarsson
Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson , 17.11.2008 kl. 16:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.