29.12.2008 | 18:29
Já, oft var þörf en nú er nauðsyn
Kæru samlandar, oft var þörf en nú er það nauðsyn. Ef okkar fagra land á að eiga möguleika á að rísa til metorða í samfélagi þjóðanna þarf að kjósa, eigi síðar en strax, og velja Framsókn til forystu. Við í Framsókn höfum yfir gríðarlega flottum hópi frambjóðenda að ráða, og fer þar fremst í flokki hin stórglæsilega kona Jónína Benediktsdóttir, sú sem ég vona að verði formaður flokksins míns.
Liðnir eru þeir tímar að við höfðum efni á því að hafa alls kyns flokka í framboði, flokka sem eingöngu eyðilögðu lýðræðið með uppskafningshætti og tilætlunarsemi.
Eina leiðin til að vernda lýðræðið er að tryggja með öllum ráðum að Framsókn fái völd í landinu og ráðrúm til að rétta landið við. Þegar okkur hefur svo tekist það, þá getum við hleypt öðrum flokkum í umræðuna.
Kviknakinn Geir og gullspilið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Trúir þú á álfasögur??
lelli (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 18:47
HaHaHa .Trúir einhver ennþá á græna þurrafúadallinn????
l (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 19:53
Þau verða fín saman X- D og X- B
Guðrún Vestfirðingur (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 21:03
Ég er ansi viss um að þú hafir misskilið hugtakið lýðræði....flettu upp á því!
bla (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 22:09
Trúin á framliðna flokkinn lifir enn!
hp (IP-tala skráð) 30.12.2008 kl. 01:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.