Þetta finnst mér ósmekkleg frétt

Erum við ekki nógu djúpt sokkin svo við séum ekki að flytja svona sóðalegar klámfréttir á veraldarvefnum?  Hvurjum er ekki sama þó svo að útlendingar geti ekki eðlað sig með náttúrulegum hætti og fjölgað þannig mannkyninu?

Í minni sveit tíðkast ekki að hafa svona máli í flimtingum, eða básúna þessum hlutum um allar koppagrundir.  Í okkar heimabyggð eðlar fólk sig til að búa til fleiri hendur til að draga björg í bú, ekki til dægrastyttingar eða óþurftar.  Og þaðan af síður valsar fólk inn í einhvurs konar verslanir og velur sér hráefni til barnagerðar eins og um kökubakstur sé að ræða.

Mér finnst svona fréttir ekki eiga heima á Nýja Íslandi.  Við þurfum að skrúbba rækilega til siðferði okkar og móralska réttsýni, og útrýma hverslags klámi og viðbjóði sem þessum.  

Að því sögðu má svo sem alveg taka undir sumar raddir sem heyrst hafa að hér sé komin fyrirtaks útflutningsleið fyrir Nýja Ísland.  Nú er viðbúið að dragbítarnir og liðleskjurnar í samfélaginu hrökklist til útlanda og eftir standi harðgerður kynstofn gegnheilla Framsóknarmanna, og sem slíkir erum við að sjálfsögðu tilvaldir til undaneldis.  Kannski er kominn tími á að við Framsóknarmenn hættum að halda okkar sterku genum innan fjölskyldunnar og hyggja á útrás.  

Í minni sveit hafa menn í gegnum tíðina verið boðnir og búnir til að leggja hver öðrum lið og rétta hjálparhönd þegar á hefur reynt í málum sem þessum, og ekkert feimnismál.  Opinská umræða, fordómalaus og upplýsandi er það sem er þörf er á um þessar mundir og þar má byggja á langri hefð okkar sveitamannanna sem og opinskáu hugarfari og víðsýni til að bjarga breska kynstofninum frá glötun, og jafnvel betrumbæta hann eilítið með exótískri blöndu af Framsóknarlitningum.

En umræða sem þessi á samt engan rétt á sér í siðuðu samfélagi og mín ráð til þeirra bresku karla og kvenna sem ekki hafa pípulagnirnar í lagi er að vera ekki að bera sinn aumingjaskap á torg og koma betlandi til okkar Íslendinga um að fá gefins aðgang að okkar stórkostlega genamengi.  Þeir geta borgað fyrir slíkt eins og við hin.


mbl.is Sæðisgjafa skortir í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða helvítis tepruvæl er í þér greyjið pussan mín

.,smkdemdklwa (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband